Velkomin(n) á heimasíðu Eyjablikks ehf.

Eyjablikk ehf er blikk og stálsmiðja sem starfar á þeim yndislega stað, Vestmannaeyjum.
Við sinnum öllum þeim verkum sem tilheyra blikksmíði, járnsmíði og jafnvel gætum við sagt að við sinntum líka vélsmíði oft á tíðum.
Okkar helstu viðskiptavinir eru fiskvinnslustöðvarnar, útgerðirnar  og verktakarnir hér í Eyjum, en ekki má gleyma þeim fjölmörgu verkefnum sem einstaklingar koma með til okkar og eru þau oftast þau skemmtilegustu enda fjölbreytnin mikil í þeim efnum.
 
 
 

Slökkvikerfi fyrir jarðgöng

16. May. 2012

Eyjablikk ehf og Sigmund Jóhannsson uppfinningarmaður hafa skrifað undir samning um smíði á slökkvikerfum fyrir jarðgöng en Sigmund hefur verið með kerfið í hönnun síðustu árin.

Kerfið byggist upp á bæði vélmennum og röralögnum í göngunum en smíði á prófunarstykkjum er nú að fara í gang. 

Eyjablikk ehf hefur einnig tekið að sér umboðssölu á nýju slökkviefni sem kallast Firestop og er það efni með alveg ótrúlega eiginleika.  Efnið er átján sinnum virkara en vatn, það slekkur alla elda, A-B-C-D-K,  eyðir reyk og þolir allt að -73° á Celsíus miðað við 6% blöndu í vatn eða sjó.

Við munum prófa efnið sjálft með fagaðilum næstu vikurnar til að sýna þeim hversu ótrúlegt Firestop er í raun og veru.

Hér má sjá umfjöllun um kerfið sem birtist í Fréttum, vikublaði í Vestmannaeyjum.

Eldri fréttir

11.04.2012 - Eyjablikk 15 ára

01.03.2012 - Umfjöllun í Morgunblaðinu

16.01.2012 - Nýtt hjá Eyjablikk

17.10.2011 - D vottun

Eldri fréttir
Eyjablikk ehf | Flötum 27 | Sími: 481-2252 | GSM: 898-0787 | eyjablikk@eyjablikk.is